Ferð fyrir tvo á Old Trafford gefins!
01. apríl 2008 klukkan 15:23
Sæl veriði, hérna hér.
Mamma vann tvo miða á seinni leikinn á old trafford í meistaradeildinni gegn Roma. Ef þið hafið áhuga þessu þá hafiði bara samband við mig.. já eða þá mömmu bara
Það er enginn í okkar famelíu sem hefur nokkurn áhuga á þessum leik.. eða meira að fara á þennan völl!
En þetta er alla vegana ferðin út og heim, gisting á e-u hóteli og svo auðvitað miðar á leikinn. Fyrstir koma fyrstir fá.
Sonurinn kveður!
Mamma vann tvo miða á seinni leikinn á old trafford í meistaradeildinni gegn Roma. Ef þið hafið áhuga þessu þá hafiði bara samband við mig.. já eða þá mömmu bara
Það er enginn í okkar famelíu sem hefur nokkurn áhuga á þessum leik.. eða meira að fara á þennan völl!En þetta er alla vegana ferðin út og heim, gisting á e-u hóteli og svo auðvitað miðar á leikinn. Fyrstir koma fyrstir fá.
Sonurinn kveður!
Jú komið þið sæl.. Ragnar hérna.
24. febrúar 2008 klukkan 21:47
Það er orðið e-ð síðan að maður bloggaði á þessa blessuðu síðu. Spurning um að gera það þar sem ég sit nú hér heima að gera lítið að viti.
En hvað er að ske í dag sem ekki var að ske síðast, fátt! Foreldrarnir eru jú búnnir að bjóða okkur bræðrum til London í byrjun apríl... en ein sönnun þess að þeim þykir vænt um okkur. Var í smá efa eftir bolludaginn... en þá voru engar bollur sendar suður og ég því að fara annað árið í röð án þess að háma í mig allt of mikið af rjómabollum! En hvað er ég að kvarta, það eru ábyggilega e-r þarna úti sem eru óheppnari en ég.
Það styttist jú í það að ég klári þennan skóla hérna í borginni og fari að gera e-ð með þessa menntun mína. Vonandi að ég fái e-ð að starfa tengt þessu í sumar, þarf lýklega að fara litast um og senda inn umsóknir sem fyrst. Ég kannski fer að sýna smá metnað og set inn video af mínum verkefnum á myspacið mitt við tækifærið... sem er "myspace.com/gamlidrengur ... svona fyrir þá sem ekki vita og vilja geta kallað sig vini mína.
Ég fór í smá breytingu um daginn... e-ð sem fólk bjóst ekki við af mér er ég viss um, en það er alltaf gaman að taka smá flipp á þetta! Lærði síðan bindishnútinn loksins, það sem google getur ekki kennt manni, ég segi ekki annað hehe.
En það er náttúrulega skagfirðingakvöld á laugardaginn næsta 1. mars, þar verður haft gaman á skagfirska vísu langt fram á nótt. Það er reyndar það eina að maður er boðinn á tvo staði og er maður að svitna við það þurfa að velja á milli... endar ábyggilega bara með því að ég hringi mig inn veikan á báða staðina svo að enginn verði súr hehe... niðurhala bara e-i ræmu og fæ mér popp og brazza. Er haa ekki?
Herru já... hvað á maður að segja ykkur meira? Þið bara spurjið ef það vakna spurningar.. skoðanir hérna fyrir neðan sko!
En já sjáumst næstu helgi!

Live.
14. október 2007 klukkan 16:12
Júú... komið þið sæl.
Nú man ég ekkert hvað var að gerast hjá mér í síðasta bloggi og ég nenni ekki að fara lesa það yfir. E-ð minnir mig samt að ég hafi verið að tala um að fara norður, og viti menn ég fór norður.
Ástæðan var að heimsækja fólk sem að maður sér lítið, fjölskyldan og vinir sem en eru búandi á krók. Gott var að komast í góðan og vel eldaðan mat, slappa af með strákunum og drekka nokkra öl. Missti af negrabolta sem er soldið súrt verð ég að viðurkenna, en það er dagur á eftir þennan dag.
Við tókum svo laugardagskvöldið með trompi þar sem við hófum drykkju á guðlegum tíma og fórum í teiti hjá hr. Snorra í fótboltanum.. kallaður Snorkur ef ég man rétt. Það var mjög fínt og var þar saman kominn hinn fínasti hópur. Kom að endingu að því að koma sér á ball og var Brynjar duglegur við að ferja menn í reiðhöllina. Þegar þangað var komið tók við að heilsa upp sjaldséða hvíta hrafna, mikið af "litlu" krökkunum í ættinni voru þarna og var bróðir minn hann Gunnar með þá meinloku að þau ættu ekkert að vera þarna og ákvað því ekkert að heilsa þeim.. afsakið það elskurnar hehe. En ballið var fjölmennt og fóru tónlistarmenn á kostum, líka Bó Hall og dinglumdanglið hans.... það sást vel í þröngum gallabuxum kallsins og er nánast öruggt að kallinn hefur veitt með sér heim aldraða heimilismóður. Það var drukkið, dansað og spjallað allt ballið og fór maður loks heim um 5 leitið.. gott ball!
En eftir þetta hef ég tekið á mig áfengis bindindi og er okt mánuður búinn að vera nánast þurr alveg. Farinn að fara á djammið í borginni edrú sem að margir merkir menn hafa talið algjört óvit og eðlilega. En hvað veit maður, þetta er greynilega mikið turn on fyrir kvennþjóðina hér í borg því að ég veð í símanúmerum eftir þessi edrú djömm mín.. óvænt ánægja verð ég að segja. Þó var ein stúlka sem var næpuhvít og í ógurlegu bláu leður korsilettu sem að bauð mér fé til að eiða með sér nóttinni. Ég hugsaði mig fljótt um og sagði henni að það væri ekki til sú fjárhæð sem mundi kaupa henni mína blíðu. Það var kannski grimmt og leiðinlegt af mér að segja en svona var ég móðgaður yfir tilboðinu.. skelfilegt alveg.
Skólinn er á fullu og nóg að gera. Ég er að setja bein og skinn á 3d Finn, ég veit það er geggjað spannandi og þið eruð að skilja hvað ég er að tala um. Set inn e-r myndir af kalli þegar að ég verð búinn að þessu.. alveg klárt.
Fólk hefur kannski tekið eftir því á msn hjá mér að ég er orðinn helmassaður. Vill ég þakka því þeim hestasterum sem ég fékk á svörtum markaði við Laufskálarétt. Þetta hefur haft í för með sér miklar líkamlegar breitingar á mér. Hættur að komast í mín eigin föt sökum stælts líkama.. síðan hefur fermingarbróðirinn vaxið ört og ég sífelt að stíga á hann greyið. En jú þetta betrum bætta líkams ástand verður e-ð að kosta.
Ég veit ekki hvað ég á meira að segja ykkur, ég er jú reyndar kominn í The ultimate Kringlu kerru team. Allir strákarnir hjá bónus og hagkaup farnir að heilsa mér þegar að við hittumst á röltinu á kringluplani.. ég veit, soldið svalt. Það kom til mín öldruð kona síðast og bað mig um að ganga frá kerru sinni fyrir sig. Ég hugsaði með mér að sjálfsögðu og þegar að ég ætlaði að fara hlaupa með kerruna þá tók hún fram budduna og rétti mér tvær grásleppur fyrir greiðan og klappaði mér svo á kinnina. Ég horfði á hana í smá stund og áttaði mig svo.. þetta getur aflað mér þvílíkar aukatekjur. Nú þegar að ég fer næsta rúnt að ná í kerrur fyrir Vínbúðina þá ætla ég að taka að mér nokkur svona verkefni, bara targetta gömlu konurnar og svo hala inn gullinu... öss lagsmaður! Gaman af þessu hehe.
Já heiriði ég veit ekki hvað ég á að skrifa meira.
Spurning dagsins:
Er góð lykt af eldra fólki?
Sonurinn kveður.

Days gone past..
11. september 2007 klukkan 18:33
Já það er soldið liðið síðan að maður skrifaði eitt svona blogg, en það er bara búið að vera nóg annað að gera.
Skólinn byrjaður og nóg af verkefnum til að vinna að þar skal ég segja ykkur. Er að vinna að auglýsingu með tveimur bekkjarfélögum mínum og er viðfangsefni okkar Regnbogabörn. Það er mikil vinna búin að fara í það um helgina t.d. þar sem að ég var að teikna karaktera fyrir hana, voðalega spennandi allt saman.
Finnur frá Þúfu, maður sem hefur lengi búið í hausnum á mér er að brjótast út í 3d max verkefninu mínu. Ég setti e-r myndir af honum hér í myndir á blogginu mínu, þeim á eftir að fjölga eftir því sem að það líður á verkefnið.. kallinn öðlast alltaf nýjan og nýjan líkamshluta eftir því sem líður á vikurnar.
Svo er líka verið að skoða eftirvinnsluna í forriti sem heitir Combustion og er með sama viðmóti og þessi stóru dýru forrit sem notuð eru við gerð stórmyndana.. þræl skemmtilegt hreint.
Var maður svo "heppinn" að vera valinn af samnemendum sínum að vera í skemmtinefnd. Það felur í sér að finna vísidaferðir og annars konar skemmtilegheit fyrir samnemendur sína. Það hefur lítið gerst ennþá og er maður strax farinn að finna fyrir hita í sæti varaformanns skemmtinefndar.. það fylgir þessari stöðu mikil pressa skal ég segja ykkur.
Um daginn var svo farið með okkur í hlátur jóka sem er án vafa ein sú undarlegasta upplifun sem ég hef lent í. Frá undarlegum og allt of háum hljóðum í það að ímynda sér morðóða slátturvél á hælum sér þá voru þessar hlátur æfingar frekar undarlegar. Maður þurfti að fara í hinar undarlegustu stellingar og kreista úr sér hláturinn á meðan umsjónarmaður námskeiðsins hljóp að fólki og hló eins og vitfirringur. Allt endaði þetta með því að maður var farinn að grenja úr hlátri af þessari vitleysu og skelfingar svip samnema sinna. Þetta var svo slúttað með því að manni var réttur blöð með upplýsingum um það hvernig maður gæti æft sig sjálfur. Það er spurning hvort að maður haldi ekki svona hlátur jóka session heima á krók þegar að maður á næst leið þangað.. gefa fólki smá keim af þeir menningu sem ausið er yfir mann hér í höfuðborginni.
Annað fréttnæmt er það nú ekki svo að ég muni. Nema það að ræktin er stunduð grimmt og maður að vinna upp á hvern einasta laugardag í kringlunni. Það er allt gott og blessað en skólinn virðist nú samt hirða mestan mans tíma og mun halda því væntanlega áfram þar til að ég skila inn útskriftar verki mínu næsta vor.
Sonurinn kveður skelli hlægjandi!

2 vikur eftir í sælunni!
07. ágúst 2007 klukkan 17:23
Þá er þetta góðviðris sumar að enda hjá manni hér á norðurlandi. Vinnan búinn að vera alveg mögnuð og verð ég að segja mér sjálfum til hrós að þetta var besta sumar sem ég gat valið til að vinna úti, ekki spurning. Það eru tvær vikur í það að ég flytji aftur suður í Flókagötuna, það verður sérstakt... þurfa að fara hugsa fyrir öllu sjálfur aftur. En það verður snilldarhelgi þegar að ég kem suður, menningarvakan verður þá. Og verða að minnsta kosti tónleikar á vegum rás2 á miklatúni. Fyrir þá sem ekki vita hvar það er þá er það hinu meginn við götuna hjá mér, annsi hreint pressan sem það er á mér að halda party... ég held samt að ég eigi eftir að standast þá pressu. Árni bró kemur þessa helgi á klakkann í ég veit ekki alveg hvað langan tíma. Gunni bró verður kannski búinn að kaupa hér fyrir sunnan og verður þá að teljast annsi hreint sterkar líkur á því að ég flytji til hans. Ég byrja aftur í vínbúðinni í kringlunni fyrstu helgina í sept, ég er svona ennþá að reyna ákveða hvort ég eigi að fara á námslán eða ekki. Væri gott að sleppa því en þá mun ég lifa lífi munks í vetur.. sem er ekkert voðalega spennandi. En hvað veit maður, skólinn byrjar 22. eftir því sem ég best veit.
Maður er nú bara búinn að vera rólegur síðan maður bloggaði síðast. Vinna gengur sinn vana gang, farinn að kíkja á eina og eina körfubolta æfingu sem er ekkert nema gaman. Enski boltinn ver að rúlla um næstu helgi og þá verður fjör.. fær maður aftur sína helstu helgar skemmtun.
En annars fór maður ekki mikið um versló þó að ég hafi látið mig hafa það að fara á Sigló á sunnudeginum. Fór ég það með honum Kidda Loft og hittum við þar bling bling gengið og nokkra aðra góða menn... og stúlkur auðvitað! Var maður nokkuð skaplegur fram að balli hjá Palla Óskari. Það kom þó að mér þýsk stúlka sem sagðist vera ljósmyndari, en hún var að ferðast um landið og taka myndir af íslendingum. Áður en ég vissi var ég búinn að samþykkja að sitja fyrir á nokkrum myndum. Lét hún mig standa hér og þar í hinum og þessum hetju stellingum og með fjöllinn og hafið í baksýn. Hún sagði mig hafa staðið mig með mikilli príði af myndatöku lokinni og fékk hjá mér numerið.. svona ef henni vantaði model. Henni fannst ég víst svo rosalega íslenskur í útliti og talaði um mig sem hreinan area! Þýskaranir eru soldið hrifnir af því virðist vera...
En þegar að kom á ballið fór e-ð að halla undan fæti og skolaði ég niður skotglasi á eftir skotglasi af viskí og vodka... þetta verður svona þegar að maður kann ekki að segja nei... skelfilegt alveg! En það kom þó ekki í veg fyrir það að Palli þáði af mér muffins sem að ég fjárfesti í í bakaríinu við hliðna á ballstaðnum... þetta var eini sykurinn sem hann fékk frá mér þetta kvöld! En maður dansaði af sér rassgatið við tónaflóðið sem barst frá sviðinu og var þetta bara hið besta ball. Síðan endaði maður með því að ráfa á tjaldstæðið og henda upp tjaldinu góða... sem ég reyndar verð að segja að sé full líðið. Það kom ekki í veg fyrir það að maður svæfi eins og engill og vaknaði maður soldið sprækur daginn eftir og var kominn heim um 15:00 á met tíma.
Voðalega gott allt saman og ég læt þetta nægja, skellið e-m skoðunum á þetta fyrir mig. það er svo gaman!
Sonurinn kveður kátur!

Þarf maður að fara að dansa svo að það fari að rigna?
04. júlí 2007 klukkan 18:17
Já þetta er með algjörum ólíkindum.... það er ekkert nema sól á klakanum og það hættir ekki að rigna á bretlands eyjum. Geta þeir ekki látið okkur fá smá gusu fyrst þeir eru að kvarta yfir þessu úrfelli. Það er nú ekki á hverjum degi sem að ég bið um rigningu en ég geri það núna og það er vegna þess að golfvöllurinn hjá okkur er að skrælna. Teigar og grín að verða meira og minna gul af bruna sama hvað við vökvum þau blessuð... skelfilegt alveg! Já það er ekki bara sæla að vinna upp á velli, það er alveg klárt.
Annars flyt ég aftur suður um 18-19 ágúst því þá er skólinn að byrja aftur hjá manni. Þá virðist allt vera klárt með það að ég vinni í vínbúðinni með skólanum í vetur... það er ekki slæmt, fá pláss á verndaðasta vinnustað landsins aftur. Það er sama fyrirkomu lag og var í fyrra, ef þið viljið versla áfengi á 50% afslætti þá er bara að hringja í mig og hitta mig aftan við búð á tímunum 3, 4 og 6!
Annars var svaka skrall um síðustu helgi, fótbolta party hjá Örnu og síðan ball á barnum... svaka tjútt alveg hreint! Maður var vel blautur.... ekki alveg nægilega gott!
Það er ekki margt meira sem að mér lyggur á hjarta... þannig að við erum ekkert að hafa þetta lengra.
Sonurinn kveður, en smá rakur eftir helgina!

Tindastóll 100 ára og góð Gargó helgi!
18. júní 2007 klukkan 22:30
Já sæl veriði.
Það er soldið síðan að maður bloggaði enda þónokkuð búið að gerast síðan síðast. Til að byrja með þá var rosaleg helgi hjá Gargó helgina 9 - 10 júní!
Það hófst allt á föstudagskvöldið þegar að við vorum komnir þarna nokkrir mætir menn úr okkar hópi og var ekki látið deigan síga, bjórinn var strax gripinn og byrjað að grilla. Maður var þó ekki lengi að þar sem að maður þurfti að vera nokkuð sprækur fyrir átök laugardagsins. Það þvældist þó ekki mikið fyrir þeim Bjössa og Eymari að vaka eina nótt á sumbli. Þeir reyndar höfðu gott eldsneiti og söng gleði meira en hollt er að ég held. Svo þegar að maður vaknaði var líka þetta fína lag tilbúið og var ekki eftir neinu beðið heldur var það sungið samstundis... verður að segjast að sá hluti sem að við fengum að heyra lofar annsi góðu og get ég ekki beðið að heyra restina.
En það var sko haldið af stað í rafting og þó að ekki hafi alveg allir mætt og menn verið alveg grautþunnir þá mátti engan bilbug á mönnum finna.... enda allt saman víkingar upp til hópa! Voru með mér í bát þeir Bragi, Kiddi, Eymar, Maggi og Helgi ásamt gædinum okkar honum Chris ef ég man rétt. Svo voru það þeir Stebbi og Bjössi sem að þurftu að fara í aðra báta og vart þarf að taka það fram en þeir bátar voru hvergi nærri eins vel mannaðir og okkar. Enda fékk Bjössi líka að kenna á því þar sem að hann var heldur betur faðmaður af ánni... ætli lagið "hjálpaðu mér upp, mér finnst ég vera að drukkna" verði ekki alltaf við hann kennt eftir þessa ferð hehe. En að endingu komust við allir heilir á þurrt og tók þá við sumbl og potta seta í vægast sagt heitum potti. 35 ára gamlir nágrannar okkar sem voru í steggja ferð gengu um naktir í tilraun sinni til að freista tveggja lessa sem voru í öðrum bústað þarna hjá okkur... og nú er Kristinn Loftur orðinn ástfanginn af ekki erfiðara skotmarki en lessu! Góður Kiddi... bara þú!
En það kom þó að því að helgin kláraðist og verð ég að segja takk kærlega fyrir mig strákar... snilldar helgi!
Það var svo afmæli Tindastóls þann 16. júní og hófst sú veisla á sauðárkróks velli. Þar vannst glæstur sigur á Skallagríms mönnum... reyndist sá leikur mun skemmtilegri en ég þorði að vona. Kann það að vera vegna þess hversu margar maður þekkti sem voru að spila, ekki endalausir útlendingar eins og svo oft áður. En svo var leikur eldri knattspyrnu manna sem var fínasta skemmtun en síðan var það veisluhlaðborð og ball upp í íþróttahúsi. Þar voru allt of margar ræður haldnar og mis góð skemmti atriði þannig að þegar ballið loks hóft að ég held klukkan 01:30 eða e-ð álíka þá var löngu runnið af manni og varð drykkjan fara alveg upp í annað veldi til að ná fyrri dampi. Þegar að maður var orðinn vel smurður hóf maður að dansa og verð ég að segja það að hér á þessari síðu hef ég oft hælt eigin danshæfileikum mikið og í mestri kaldhæðni.... en þetta kvöld þá loks komu taktar sem að ég vissi ekki að ég byggi yfir! Enda voru allar þær stúlkur sem fengu að prófa að dansa við kallinn lafmóðar af átökunum.
Það er kannski ekkert skríðið því að kallinn er að koma sér í skuggalegt form, enda handhafi sumarkorts í djimminu.. ekki að spyrja að því!!!
En já ég ætla að halda mig við það að bloggar bara næst þegar að það eru alla vega komnar 10 skoðanir... þá er alla vega loks e-ð að frétta af manni og maður getur bloggað e-ð meira en 5 línur.
Sonurinn, hin mikla lipurtá kveður!

Tíminn líður kannski!
30. maí 2007 klukkan 22:28
Komið þið sæl öll!
Maður er bara hérna í sveitinni (króknum) að slappa af þessa dagana. Tíminn hreyfist hægt og sólin bakar mann á svona fallegum stað. Farinn að vinna upp á golfvelli eins og brjálaður maður, mokandi möl og höggvandi grasið. Það var nú ekki alveg blankalogn í gær en það var nóg til þess að ég reif mig úr peysunni og leifði sólinni að baða handleggi mína og andlit.... er ég þá líka kominn með þessa rosalegu bóndabrúnku. Skaðbrann á handleggjunum og nefinu, minnir bara soldið á það þegar að maður kom frá dk lýtandi út eins og karvi... skelfilegt alveg! En það er notalegt að vera að vinna úti og slær öllum öðrum vinnum við þegar að veðrar vel.
Maður lætur sig að sjálfsögðu ekki vanta á helgardjömmin hér í bæ.. þótt að ég verði að viðurkenna það að ég hef ekki alveg verið að ná upp stemmaranum eftir að ég kom norður. En það kemur væntalega á stórdansleik sem verður á næsta laugardag til heiðurs sjómönnum okkar kæra fiskilands. Hef trú að þessu balli og að góðir hútir gerist þrátt fyrir að brúnkujafnvægi líkama míns sé í tómu tjóni.... haha hafið þið heyrt söguna um manninn sem fór í ljós sama dag og hann brann....?? haha það var ekki ég...! Þakka guði fyrir "aloa vera after sun"... er með flösku af því við hliðina á viskípelanum hjá rúmminu mínu, maður veit aldrei hvenær maður þarf að þessu að halda.... þó að það fari hraðar úr "after sun" flöskunni þessa dagana.
Talvan hefur ekki verið starfhæf síðan að ég kom heim á krók... maður er að reyna bjarga því samt! Alveg skelfilegt að vera svona án hennar blessaðrar!
facebook er að rokka tilveru mína þessa dagana, það er þá síða sem að félagar mans setja inn myndir örðu hverju og maður getur skoðað. Alveg frábært þegar að maður er að rifja upp djamm frá helgunum... nauðsynlegt segja meira að segja sumir.
En alla vega þá hef ég ekkert meira að segja held ég, var bara meira að láta vita að ég væri á lífi hérna... læt aftur vita þegar að það verða komnar svona 10 skoðanir á þetta blogg... þá verður örugglega svona mánuður liðinn og nýjar fréttir kannski komnar af manni!

Skagafjörður.
15. maí 2007 klukkan 16:03
Jamm og jájá, þá er maður kominn norður á Krók allt er eins og því vera ber. Fjöllin og hafið á sínum stað, enginn aur í neinu húsi og ég veit ekki hvað. Maður er bara að gera sig kláran fyrir það að fara vinna upp á golfvelli og þegar að það hefst þá getur maður farið að skipuleggja aðra dagskrá í kringum það. Það eru fögur fyrirheit fyrir þetta sumar og maður reyndir eftir bestu getu að standa við þau.
Það var aðeins farið á djamm á laugardaginn þegar að kostningarnar stóðu yfir... by the way, ég bara trúi ekki að ríkisstjórnin hafi haldið velli! Tel ekki miklar líkur á öðru en að sjálfstæðis flokkurinn haldi áfram samstarfi við framsókn... meina þá fá þeir hvort sem er að ráða nánast öllu. En hvað um það, það verða aðrar kostningar eftir 4 ár.
En alla vega var á djammið farið og fengum ég og Þórður að troða okkur í party til Binna R. og það var gaman, fullt af fólki sem að maður er ekki alveg að hitta á hverjum degi. En þegar að við ákváðum loks að fara niður í bæ þá beið okkar enginn smá kaggi marr! Það var bara splæst í 30 mín rúnt á gula hummer limmanum. Maður á ekki eftir að sætta sig við neitt minna eftir þetta það er klárt. Sumir þurftu reyndar að borga meira en aðrir í þessari ferð en hvað....?
Þegar að komið var niður í bæ kólnaði e-ð smá fjörið í manni og lagði maður bara snemma af stað heim í svefn. Samferðar menn mínir heim á leið gleymdu mér er ég fór bakvið eitt húsasund að pissa þannig að þegar að ég kom til baka stóð ég einn þarna á miðjum laugarveginum! Það varði því miður ekki lengi þar sem að upp að mér kom maður og heilsaði mér. Heilsaði ég á móti og þá spurði hann mig hvort hann væri nokkuð að trufla mig?
Ég bara neinei eins og ekkert, en sagði honum þó að kostningarnar væru yfirstaðnar að það væri full seint að reyna veiða inn atkvæði núna(hann var þannig klæddur sko).
En þá spurði hann mig hvort að ég triði á guð og hvort ég vissi hvernig trúin og vísindi gætu unnið saman?
Ég sagði bara nei og lét hann vita það að hann ætti ekki að fara tala um guð við fullan mann. Hann vildi þrátt fyrir það ekki gefa sig og elti mig í góðar tíu mínútur röflandi e-ð um þetta. Þar til að ég stoppaði hann og sagði honum að fara... e-ð var hann tregur þannig að ég sagðist vera mjög nálægt því að fara elta hann með líkamsmeiðingar í huga. Þá loks náði hann þessu og hélt sína leið... skelfilegt alveg að maður getur ekki lengur labbað heim af djamminu þarna fyrir sunnan óhultur fyrir svona mönnum!
En alla vega þá er maður kominn norður í öryggið og farinn að njóta þess til hins ítrasta!
Sonurinn kveður, fullur af upplýsingum um það hvernig guð og vísindin geta dansað saman vals!

Verkefnum lokið og styttist í heimför.
07. maí 2007 klukkan 12:10
Þá er andvöku nóttum lokið og stöðugur og ljúfur svef ríkir enn á ný. Öllum verkefnum hefur verið skilað og allsráðandi kæruleysi hefur tekið sinn sess í lífi mans.
En síðasta vika mun ekki hafa verið sú mest spennandi og því er ekki frá miklu að segja. En það sem telja má markvert kemur hér í punktum:
En þetta hófst allt eins og hið besta pulsuparty þar sem að engin kvennmaður sást fyrr en seint og um síðir. En þeir sem komu voru Þórður, Bragi, Stefán, Kiddi, Bjössi, Kolli, Aron rastari og síðar komu þær Sigrún, Tinna og Andrea. Verður að geta þess hér í þessu bloggi mínu (algjörlega óumbeðinn!) að þær færðu mér gjafir verðugar forsetanum sjálfum. Sind að Bragi skildi ekki vera eins heppinn og ég hehe! En þegar að ölið var farið að synda í æðum manna fór það æði að lifta stelpum eins og eldur um sinu hjá gestum mínum. Get ég stoltur sagt að ég var ekki einn þeirra og er það að ég held greynilegasta merki þroska sem ég hef sýnt síðan að ég varð 22 ára gamall. En þegar að það kom að því að fá mannskapinn út og niður í bæ hófust lætin. Strákarnir tóku stökk aftur í barnæsku og fóru að láta mig bera sig út úr húsi. En um leið og ég var búinn að halda á þeim út hlupu þeir skrækjandi inn aftur. En að lokum hófst þetta mikla þrekvirki og við gengum á stað niður í bæ. E-ð þóttum við Aron, Andrea og Kolli frá á fæti því að Sigrún og Tinna komu argandi móðar á eftir okkur og skömmuðu okkur fyrir þessi "hlaup"! En e-ð þótti strákunum sem eftir voru vegalengdin á milli okkar löng því ekkert sást til þeirra restina af kvöldinu, nema jú honum Þórði litla glókolli og með honum kom Alli tuðrusparkari og bankamaður okkur til óvæntrar gleði!
Frá ævintýrum strákanna þetta kvöld ætla ég sem minnst að segja og þið þurfið að rekja það upp úr þeim sjálfum ef þið viljið heyra merkilega sögu. En upphafið af því ævintýra var afskaplega vitlaust og voru sumir kaflar inn í því miðju svipað vitlausir en ekki orð um það meir.
Það var dansað og tjúttað á Hressó og held ég að mannskapurinn hafi bara skemmt sér ágætlega, alla vega í Flókagötunni. En ævintýrum kvöldsins var ekki lokið, þegar að farið var og ætlað að fá sér Hlölla á Austurstræti upphófst það asnalegasta. Þar sem að leiklistarhæfileikar mínir eru ótvíræðir tók ég upp á því að leika Arnold Svassa fyrir Þórð og Alla. E-ð þótti ungum og hugrökkum serbum þetta óviðeigandi og fóru að hóta mér líkamsmeiðingum með orðum og látbragði. En þar sem að ég hafði tvö heljarmenni mér til aðstoðar þá hélt ég mér óhræddur í karakter á meðan að ég rökræddi tilgang minn þarna. Og á endanum sáu þeir sér til mikillar minkunar að Arnold og vinir voru hreinlega allt of stór biti svona rétt fyrir svefninn. Guð sé lof þar sem að Arnold og félagar eru ekki þekktir fyrir mikinn slagsmáladug(það hefur alla vega ekki en reynt á það og vonandi breytist það ekkert)!
En að lokum komust við heim heilir af húfi frá stórhættulegu næturlífi borgarinnar.
Menningin greip mig heljartökum í gær þar sem að ég tók mér göngu fyrir hendur. Það var laugarvegurinn sem varð fyrir valinu. Fjárfesti ég í ný útkominni bók gerða eftir miklu punkta safni J.R.R. Tolkiens og nefnist hún "The Children of Húrin". En hún fjallar um fjölskyldu eina sem átti erfið örlög langt fyrir þann tíma sem "Hringdrottinssaga" gerist. Fer hún bara nokkuð vel af stað og mun hún lýklega vera minn besti vinur þar til að ég fer norður að vinna á golfvellinum heima á Krók. Þar sem að allflestir eru að vinna eða í prófum af mínum félögum hér fyrir sunnan.
Sonurinn kveður með nefið ofan í bók!

- Liverpool sló Chelsea aftur út úr undanúrslitum meistaradeildarinnar í fótbolta og mæta þar eins og síðast, mjög sterku liði AC Milan!
- Setti ég persónulegt met hvað vöku varðar og var svefnlaus í heila 52 tíma, svefninn var því velkominn þegar loks að honum kom.
- Fimmtudagur reis og með honum hófst mitt 23ja aldursár, er ég þá orðinn 22 ára gamall og þekking og lífsreynsla eikst með degi hverjum.